FL Group hefur selt 13,3% hlut sinn í norska innheimtufyrirtækinu Aktiv Kapital. Andvirði sölunnar er um 6,3 milljarðar ísl. króna.

„Sala hlutanna er í samræmi við stefnu FL Group að minnka vægi eignarhluta í skráðum félögum sem ekki falla undir kjarnafjárfestingar félagsins. Salan hefur neikvæð áhrif á afkomu FL Group á fyrsta ársfjórðungi 2008 sem nemur um 400 milljónum króna," segir í tilkynningu frá FL Group.