FL Group hefur selt stærstan hluta eignar sinnar í AMR, móðurfélagi American Airlines og kemur salan með að styrkja sjóðsstöðu FL Group um 10 milljarða króna.

Í lok þriðja ársfjórðungs 2007 var markaðsvirði hlutar FL Group í AMR um 31,2 milljarðar króna. Á árinu 2007 hefur eignin lækkað um 15 milljarða króna, þar af hafa um 13 milljarðar nú þegar verið gjaldfærðir á fyrstu níu mánuðum ársins. Eftir söluna á félagið um 1,1% eignarhlut í AMR.

Í fréttatilkynningu vegna sölunnar segir að sala bréfanna sé í samræmi við stefnu FL Group að auka fjölbreytni eignasafns síns og mun félagið í kjölfarið skoða áhugaverð fjárfestingatækifæri á markaði.

FL Group hóf að fjárfesta í AMR í lok árs 2006 hefur rekstur félagsins verið með miklum ágætum og tekið stakkaskiptum frá fyrri árum. FL Group sendi opinbert bréf til stjórnar AMR í september, þar sem það kynnti tillögur sínar um hvernig mætti auka virði félagsins, m.a. með sölu vildarklúbbs félagsins og aukinni upplýsingagjöf. Í kjölfarið fór af stað mikil fjölmiðlaumræða í Bandaríkjunum; um væntanlega samþjöppun á markaði, aukna upplýsingagjöf til fjárfesta og sölu eininga sem ekki falla undir kjarnastarfsemi flugfélaganna. Umræðan leiddi einnig til þess að aðrir hluthafar AMR og annarra flugfélaga stigu fram með svipaðar áherslur. Þann 28. nóvember síðastliðinn tilkynnti AMR um fyrirhugaða sölu á dótturfélagi sínu, American Eagle, sem áætlað er að ljúki á næsta ári, segir í tilkynningunni.

Þrátt fyrir að jákvæð skref hafi verið stigin af hálfu stjórnar AMR til að auka virði hluthafa félagsins og jákvæða umræðu í Bandaríkjunum, telur FL Group að of mikil óvissa ríki um þau áform og hvenær þeim yrði hrint í framkvæmd. Auk þess eru blikur á lofti um áframhaldandi hækkun olíuverðs og hugsanlegan samdrátt í bandarísku efnahagslífi. Í því ljósi var það ákvörðun félagsins að selja megnið af hlut sínum í AMR og skoða aðra fjárfestingakosti á markaði í kjölfarið, segir í tilkynningunni.

Fjallað er um sölu AMR á American Eagles í Viðskiptablaðinu í dag.