FL Group og Reynimelur ehf hafa nú í kjölfar kauptilboðs dagsettu 2. mars, skrifað undir endanlegan kaupsamning um eigandaskipti á hlutum í Kynnisferðum ehf og er kaupandi nú eigandi alls hlutafjár Kynnisferða ehf. segir í tilkynningu.

Reynimelur ehf er eignarhaldsfélag í eigu fjárfesta undir forystu SBA-Norðurleiðar hf. og Hópbíla hf.

Kynnisferðir voru stofnaðar árið 1968 og hafa alla tíð verið í fremstu röð á sínu sviði. Félagið heldur uppi ferðum milli Reykjavíkur og Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar og býður upp á dagsferðir frá Reykjavík til allra helstu ferðamannastaða í nágrenni borgarinnar, auk þess að sinna margháttaðri annarri þjónustu. Rekstur Kynnisferða hefur verið með ágætum undanfarin ár, markaðsstaða fyrirtækisins er sterk og velta þess nam á síðasta ári um 1,5 milljörðum króna.

Með þessu hefur FL Group lokið sölu á öllum dótturfyrirtækjum sínum sem tengdust gamla ferðaþjónustuhluta Flugleiða eins og hann var, áður en fyrirtækið fékk nafnið FL Group segir í tilkynningu.