Stjórn FL Group samþykkti á fundi sínum í dag að undirrita samning við Boeing flugvélaverksmiðjurnar í Bandaríkjunum um kaup á 5 Boeing 737-800 flugvélum til viðbótar við þær 10 sem samið var um í febrúar. Félagið fékk kauprétt á þessum fimm viðbótarflugvélum sem hluta af samningnum sem undirritaður var í febrúar og hefur nú ákveðið að nýta þennan rétt. Heildarverðmæti þessara flugvéla samkvæmt verðskrá er um 20 milljarðar króna.

Markmið FL Group er að byggja upp flugvélaleigu og félagið samdi við Boeing á grundvelli mjög hagstæðs kaupverðs um 10 flugvélar í febrúar. Samningar um útleigu fyrstu fimm flugvélanna sem koma til félagsins á árinu 2006 eru á lokastigi. Í ljósi þess hve vel hefur gengið við útleigu flugvéla hefur FL Group ákveðið að nýta sér kauprétt á fimm flugvélum til viðbótar sem koma árið 2007.

?Markaðssetning Boeing 737-800 flugvéla hefur gengið mun hraðar en áætluð var," sagði Hannes Smárason, stjórnarformaður FL Group í dag. ?Horfur á útleigu og sölu annarra flugvéla sem félagið hefur fest kaup á eru mjög góðar því eftirspurn hefur farið vaxandi á markaðinum. Nú þegar hefur Boeing selt alla framleiðslu sína á næsta ári og því er samningur FL Group um vélarnar mjög verðmætur."

Eins og fram hefur komið í tilkynningum frá FL Group telur félagið sig eiga kost á að innleysa verulega dulda eign í þessum flugvélum í gegnum fjármögnun þeirra og útleigu. Nú er ljóst að þessi eign eykst verulega frá því sem áður var kynnt. Hagstætt kaupverð réðist fyrst og fremst af tímasetningu kaupanna og löngu og traustu sambandi félagsins við Boeing verksmiðjurnar.