FL Group er stærsti einstaki hluthafinn í breska laggjaldaflugfélaginu easyJet, en félagið greindi frá því fyrr í mars að eignarhluturinn nemi nú 16,9%.

Stjórnarformaður og stofnandi easyJet, Stelios Haji-Ioannou, 16,6% hlut og bróðir hans og systir eiga 12,02% hver.

Stelios segir það ekki koma sér á óvart að FL Group sé orðinn stærsti einstaki hluthafinn, í samtali við Dow Jones fréttastofuna, þó svo að hann hafi ekki gert sér grein fyrir því. "Hver sem kaupir hlutabréf í félaginu (easyJet) hjálpar við að halda upp gengi hlutabréfanna," sagði Stelios.