Nafni fjárfestingafélagsins FL Group hefur verið breytt í Stoðir, eignarhaldsfélag, í kjölfar endurskipulagningar á rekstri og fjárfestingastefnu félagsins.

Stoðir hafa keypt kjölfestuhlut í Baugi Group fyrir 25 milljarða króna sem greiðast með hlutabréfum í Stoðum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Seljandi hlutarins er Styrkur Invest sem er í meirihlutaeigu Gaums. Kaupverð hlutarins er 25 milljarðar króna en samkvæmt tilkynningunni verður greitt fyrir hlutinn með hlutabréfum í Stoðum sem verður í nýjum hlutaflokki B bréfa sem bera ekki atkvæðisrétt.

Þá kemur fram að viðskiptin eru gerð með fyrirvara um áreiðanleikakönnun og samþykki hluthafafundar Stoða sem auglýstur verður síðar.

Samkvæmt tilkynningunni munu Stoðir fara með tæplega 40% virkan eignarhlut í Baugi eftir viðskiptin auk þess að eiga eignarhlut í B hlutaflokki félagsins sem ekki veitir atkvæðisrétt. Aðrir hluthafar í Baugi eru Kevin Stanford, Don McCarthy, Bague SA og starfsmenn félagsins. Stærsti hluthafi Stoða er Styrkur Invest.

Þá kemur fram að Baugur hefur fyrir þessi viðskipti lokið við sölu allra eigna á Íslandi og mun eftirleiðis leggja alfarið áherslu á fjárfestingar í smásöluverslun í Bretlandi, Norðurlöndum og Bandaríkjunum. Meginhluti starfsemi Baugs verður staðsettur í London. Meðal stærstu fjárfestinga Baugs eru Iceland, House of Fraser, Mosaic Fashions, Hamley´s, Whistles, Goldsmiths, Magasin du Nord, Illum og Saks.

Með kaupum á eignarhlut í Baugi eykst eigið fé Stoða um 25 milljarða króna en nánari upplýsingar um efnahag Stoða verða birtar í uppgjöri félagins fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2008 sem kynnt verður þann 29. ágúst nk.

Í framhaldi af viðskiptunum er stefnt að samnýtingu ákveðinna rekstrarþátta í starfsemi Stoða og Baugs og er m.a. gert ráð fyrir að starfsemi félaganna í London verði færð undir sama þak í húsakynnum Baugs.

Tengdar fréttir:

„Stoðir ríma vel við mikilvægasta hlutverk okkar“