FL Group [ FL ] tilkynnti í morgun að félagið hefur samið við Saga Capital og Glitni [ GLB ] um að annast viðskiptavakt með bréf félagsins. Viðskiptavaktin hefst í dag og felur hún í sér að sett verða fram daglega kaup- og sölutilboð í hlutabréf FL Group í því skyni að markaðsverð skapist á hlutabréfunum og verðmyndun verði með skilvirkum og gagnsæjum hætti.  Tilboðin eru sett fram í viðskiptakerfi OMX á Íslandi, áður en markaður er opnaður og skulu ekki gilda lengur en innan dagsins.

Samkvæmt tilkynningunni eru skilmálar viðskiptavaktarinnar þeir, í fyrsta lagi að Saga Capital og Glitnir skuldbinda sig til að setja daglega fram kaup- og sölutilboð í hlutabréf FL Group að lágmarki 500.000 krónur að nafnverði, hvor fyrir sig, á verði sem ákveðið er í hvert skipti. Í annan stað að hámarksmunur á kaup- og sölutilboðum skuli ekki vera meiri en 1,0% og frávik frá síðasta viðskiptaverði ekki meira en 2,0%. Í þriðja lagi að hámarksfjárhæð heildarviðskipta hvors aðila fyrir sig skuli vera 200 milljónir króna að markaðsvirði dag hvern.