Flaga Group [ FLAGA ] hefur hækkað um 37,68% það sem af er degi og er það félag sem hefur hækkað langmest í íslensku kauphöllinni, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Á sama tíma hefur Úrvalsvísitalan hækkað um 1,2%.
Veltan með bréf félagsins nemur 5,6 milljónum króna í 27 viðskiptum.
Í gær nam dagshækkun Flögu Group 15%.
Það sem af er ári hefur félagið hækkað um 11,76%. Litið til síðustu tólf mánaða nemur lækkunin 61,4%.
Markaðsvirði félagsins er 685 milljónir króna.
Exista er stærsti hluthafi Flögu Group með 22% og Kaupþing kemur þar á eftir með 19,8% hlut.