Í framhaldi af tilkynningu félagsins frá því í gær um skipulagsbreytingar Medcare, vill stjórn Flögu Group hf. og stjórnendur Medcare tilkynna nýtt skipulag á starfsemi félagsins. Starfsemin verður flutt nær viðskiptavinum félagsins, kostnaður mun lækka umtalsvert og tækifærum til tækniþróunar mun fjölga. Þessi stefnubreyting félagsins hefur verið mörkuð til að tryggja stöðu Medcare sem leiðandi aðila á alþjóðlegum tækjamarkaði til svefnrannsókna.
Þrátt fyrir að höfuðstöðvar Flögu Group hf. verði áfram á Íslandi fela breytingarnar í sér að opnaðar verða nýjar höfuðstöðvar Medcare fyrir Bandaríkjamarkað og starfsemi félagsins í Evrópu verður styrkt. Þetta leiðir til þess að lykilstöður verða fluttar til Bandaríkjanna og Evrópu, mun nær viðskiptavinum félagsins. Áætlað er að þetta nýja skipulag verði að fullu orðið virkt á öðrum ársfjórðungi 2006.
Kostnaður við breytingarnar er áætlaður að skili sér á einu ári og að rekstrarkostnaður eftir breytingar verði umtalsvert lægri og sveigjanlegri en núverandi kostnaðaruppbygging félagsins. Samkeppnishæfni félagsins eykst vegna fækkunar starfsfólks og lækkunar á öðrum föstum kostnaði. Þessar breytingar mun gera félaginu kleift að vaxa hraðar með aukinni arðsemi á vaxandi markaði.
"Við munum úthýsa framleiðslu, vöruhúsaþjónustu og dreifingu. Við munum flytja hugbúnaðarþróun og tækniþjónustu fyrir Bandaríkjamarkað til Ottawa í Kanada og höfuðstöðvar Medcare fyrir Bandaríkjamarkað verða fluttar frá Buffalo í New York til Denver í Colorado, þar sem félagið verður mjög vel landfræðilega staðsett til að þjóna Bandaríkjamarkaði, sem er langstærsti markaður heimsins fyrir svefnmælingatæki og þjónustu," segir í tilkynningu félagsins.
Stjórn Flögu Group hf. telur á að þessar breytingar geri félagið hæfara til að þjóna viðskiptavinum sínum og nýti betur vaxtartækifæri á hratt vaxandi markaði.