Nýr 360° kortavefur Já var settur í loftið í síðustu viku en þar má sjá götur og hús í mjög nákvæmri mynd. Telma Eir Aðalsteinsdóttir, verkefnastjóri hjá Já, segir viðbrögðin hafa verið góð.

Nýtingin á kortavefnum í spjaldtölvum er mjög frábrugðin nýtingu í tölvum. Þá er hægt að snúa sér í hringi með spjaldtölvuna og skoða sig vel um.