Flugstöð Leifs Eiríkssonar hf. og Fróði ehf. hafa undirritað samning um dreifingu á tímariti í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Tímaritið mun koma út sex sinnum á ári eða annan hvern mánuð og mun fyrsta tölublað koma út í júlí.

Um er að ræða afþreyingar- og auglýsinga tímarit með ferðatengdu efni. Fróði mun bera ritstjórnarlega ábyrgð á blaðinu og er ábyrgt fyrir allri efnisöflun og sölu auglýsinga í blaðið. Jafnframt sér Fróði um hönnun, umbrot og prentun þess og skilar því fullbúnu til dreifingar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar