Í júlí flutti Icelandair 355 þúsund farþega í millilandaflugi og voru þeir 16% fleiri en í júlí á síðasta ári.  Farþegafjöldinn er sá mesti í einum mánuði frá stofnun félagsins, og þetta er í fyrsta sinn sem félagið flytur í einum mánuði fleiri farþega en sem nemur íbúatölu Íslands. Framboðsaukning á milli ára nam 19% og sætanýting var 85,9% samanborið við 86,1% á sama tíma í fyrra. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Farþegar í innanlandsflugi og Grænlandsflugi voru rúmlega 32 þúsund í júlí. Framboð félagsins í júlí var aukið um 4% samanborið við júlí 2013. Sætanýting nam 72,2% og dróst saman um 1,5 prósentustig á milli ára.

Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 26% á milli ára.  Fraktflutningar jukust um 9% frá því á síðasta ári. Fjöldi seldra gistinótta á hótelum félagsins var svipaður á milli ára. Herbergjanýting var 89,1% samanborið við 89,2% í júlí í fyrra.