Í febrúar 2011 voru skráð 125 ný einkahlutafélög (ehf) samanborið við 148 einkahlutafélög í febrúar 2010, sem jafngildir rúmlega 15,5% fækkun milli ára. Eftir bálkum atvinnugreina voru flest einkahlutafélög skráð í Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum og Fjármála- og vátryggingastarfsemi. Heildarfjöldi nýskráðra einkahlutafélaga er 265 fyrstu 2 mánuði ársins og hefur nýskráningum fækkað um rúmlega 13% frá sama tímabili árið 2010 þegar 305 ný einkahlutafélög voru skráð.

Í febrúar 2011 voru 130 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta samanborið við 84 fyrirtæki í febrúar 2010, sem jafngildir tæplega 55% fjölgun milli ára. Eftir bálkum atvinnugreina voru flest gjaldþrot í Heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum. Fyrstu 2 mánuði ársins 2011 er fjöldi gjaldþrota 225 sem er rúmlega 20% aukning frá sama tímabili árið 2010 þegar 187 fyrirtæki voru tekin til gjaldþrotaskipta.

Hagstofan.