Í ár hafa fleiri fyrirtæki skipt um orkusala en áður. Að meðaltali hafa rúmlega 16 fyrirtæki skipt um orkusala á mánuði í ár, samanborið við um 12 í fyrra.

Þetta kemur fram á vef Orkuvaktarinnar en þar má sjá samanburð eftir árum. Segir að fyrirtæki geti farið ýmsar leiðir til að hagræða í raforkumálum og ein af þeim sé að leita tilboða hjá orkusölum.