Gistinætur á hótelum voru 286.200 í jjúlí og fjölgaði þeim um 8% frá í júlí í fyrra, samkvæmt upplýsingum Hagstofunnar . Gistinætur erlendra gesta voru 90% af heildarfjölda gistinátta í mánuðinum og fjölgaði þeim um 9% á milli ára. Á sama tíma fjölgaði gistinóttum Íslendinga um 3% á milli ára. Það sem af er ári hafa gistinætur á hótelum landsins verið 1.217.500 talsins. Það er um 14% aukning á milli ára. Þar af voru gistinætur erlendra gesta 15% fleiri á fyrstu sjö mánuðum ársins en í fyrra.

Fram kemur á vef Hagstofunnar að á höfuðborgarsvæðinu voru 163.500 gistinætur á hótelum í júlí sem er aukning um 6% frá sama mánuði í fyrra. Á Suðurnesjum voru 14.100 gistinætur í júlí sem er um 38% aukning miðað við júlí 2012.  Á samanlögðu svæði Vesturlands og Vestfjarða voru 17.700 gistinætur í júlí sem er um 23% aukning frá fyrra ári.  Á Norðurlandi voru 30.500 gistinætur í júlí sem er um 8% aukning miðað við júlí 2012. Gistinóttum á hótelum á Suðurlandi fjölgaði einnig um 8% en þar voru gistinætur um 43.200 samanborið við 40.200 í júlí 2012.  Á Austurlandi fjölgaði gistinóttum um 3% milli ára fóru úr 16.600 í 17.200.