Samtals fengu 5.660 heimili fjárhagsaðstoð sveitarfélaga árið 2019 og hafði heimilum sem þáðu slíkar greiðslur fjölgað um 646 (12,9%) frá árinu áður. Frá árinu 2013 til 2018 hafði heimilum með fjárhagsaðstoð fækkað á milli ára eftir að hafa áður fjölgað árlega frá árinu 2007. Frá þessu greinir Hagstofa.

Frá árinu 2018 til 2019 hækkuðu útgjöld sveitarfélaganna vegna fjárhagsaðstoðar um 867 milljónir króna eða 26,4%, en á föstu verðlagi hækkuðu þau um 25,9%. Meðalmánaðargreiðslur fjárhagsaðstoðar voru 160.800 krónur og hækkuðu frá árinu á undan um 24.558 krónur eða 18,0%. Árið 2019 var fjárhagsaðstoð greidd að meðaltali í 4,6 mánuði en 4,5 mánuði árið 2018.

Af þeim heimilum sem fengu fjárhagsaðstoð árið 2019 voru heimili einstæðra barnlausra karla 43,6% og heimili einstæðra barnlausra kvenna 22,9% en heimili einstæðra kvenna með börn 21,1%. Heimili hjóna/sambúðarfólks voru 10,5%.

Breyting í fjölda heimila sem þiggja fjárhagsaðstoð hefur að mestu haldist í hendur við þróun atvinnuleysis eins og kemur fram í myndinni hér fyrir neðan sem sýnir fjölda viðtakenda fjárhagsaðstoðar og árlegt hlutfall atvinnuleysis samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofunnar árin 2003 til 2019.