Það hefur færst í vöxt undanfarin ár að landsmenn skreyti líkama sína með húðflúrum en nýjasti Þjóðarpúls Gallup kannar algengi þess.

Í ljós kom að fimmtungur fullorðinna Íslendinga er með húðflúr. Ólíkt því sem var áður fyrr eru konur frekar með húðflúr en karlar, eða nær 24% á móti tæpum 17% karla.

Húðflúr eru algengust hjá fólki milli þrítugs og fertugs, svo hjá fólki undir þrítugu, þá hjá fólki milli fertugs og fimmtugs en sjaldgæfust hjá fólki yfir fimmtugu.

Þeir sem hafa ekki lokið framhaldsskólaprófi eru frekar með húðflúr en þeir sem hafa meiri menntun að baki.

Mikill munur er eftir því hvaða stjórnmálaflokk fólk kysi til Alþingis en langflestir eru með húðflúr meðal þeirra sem kysu Pírata, eða 42% og fæstir meðal þeirra sem kysu Framsóknarflokkinn, eða tæplega 4%.

Auk þess sem fimmtungur landsmanna er með húðflúr gæti ríflega fimmtungur þeirra sem eru ekki nú þegar flúraðir hugsað sér að fá sér húðflúr.

Þeir sem eru flúraðir eru að meðaltali með 3 húðflúr. Hátt í 39% þeirra eru með eitt, nær 22% með tvö, tæplega 13% með þrjú og rúmlega 27% eru með fjögur eða fleiri.

Af þeim sem eru með húðflúr er fólk yngra en þrítugt að meðaltali með flest húðflúr en fólk milli þrítugs og fertugs og fólk milli fimmtugs og sextugs með næstflest. Fólk milli fertugs og fimmtugs og fólk eldra en sextugt er að meðaltali með færri húðflúr.

Mjög hátt hlutfall þeirra sem eru með húðflúr gæti hugsað sér að fá sér fleiri, eða ríflega 87% þeirra sem taka afstöðu.

Fólk yngra en þrítugt er líklegast til að geta hugsað sér það, þá fólk milli þrítugs og fertugs, svo fólk milli fertugs og fimmtugs, en fólk eldra en fimmtugt er ólíklegast til þess. Það eru mestar líkur á að fólk geti hugsað sér að fá sér fleiri húðflúr annars vegar meðal þeirra sem hafa ekki lokið framhaldsskólaprófi og hins vegar meðal þeirra sem hafa lokið háskólaprófi.