Þeim Íslendingum fækkar sem aldrei hafa notað tónlist, sjónvarpsefni eða kvikmyndir sem hefur verið hlaðið niður af deilisíðum. Þannig voru 44% Íslendinga sem aldrei hafa notað efni sem hefur verið hlaðið niður með slíkum hætti, samanborið við 50% árið 2015 í könnun MMR . Auk þess kom í ljós að fólk á aldrinum 18 - 29 ára reyndist líklegasti aldurshópurinn til að nota efni sem hlaðið hefur verið niður af deilisíðum. Þannig voru 84% svarenda á aldrinum 18 - 29 ára sem höfðu notað efni sem hlaðið var niður af deilisíðum, samanborið við 18% svarenda á aldrinum 68 ára og eldri.

Aukning á notkun efnis sem hlaðið var niður af deilisíðum hefur helst orðið í aldurshópnum 50 - 67 ára en 41% svarenda í þeim aldurshóp sögðust hafa notað efni sem hlaðið hafði verið niður með slíkum hætti, borið saman við 27% svarenda árið 2015. Þetta gefur til kynna breytingu á neysluvenjum fólks á notkun efnis af deilisíðum. Sú breyting er í takt við þá þróun sem á sér stað á markaðinum en neytendur eru í auknum mæli farnir að nýta sér einfaldar og hraðvirkar streymisveitur, á borð við Netflix og Hulu.

Sjálfstæðismenn ólíklegri til að nota Netflix

Ef munur var skoðaður eftir stuðning við stjórnmálaflokka kom í ljós að flest stuðningsfólk Pírata höfðu notað efni sem hlaðið hafði verið niður af deilisíðum, eða 79%, og var auk þess líklegra en stuðningsfólk annarra stjórnmálaflokka til að gera slíkt. Aftur á móti var stuðningsfólk Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar líklegra en stuðningsfólk annarra stjórnmálaflokka til að hafa aldrei notað efni sem hlaðið var niður af deilisíðum, eða 57% hvor.