Í ár hefja fleiri nýnemar skólasetu í Háskólanum í Reykjavík heldur en fyrir ári, eða 1.340 manns, sem er 7% fjölgun frá síðasta skólaári. Hefja 908 nemar grunnnám, 283 meistaranám og 152 frumgreinanám að því er fram kemur í frétt á vefsíðu Samtaka iðnaðarins.

Að auki stunda um 140 erlendir skiptinemar nám við HR á þessari önn. Það eru því um 1.500 manns sem hófu nám við HR í liðinni viku.

Flestir í tækni- og verkfræðideild

Flestir nýnemar hófu nám í tækni- og verkfræðideild en mesta fjölgun nýnema er í lagadeild þar sem nýnemum í grunnnámi og meistaranámi í lögfræði fjölgar um þriðjung á milli ára.

Á skólaárinu sem nú er hafið stunda um 3.600 nemendur nám við HR í viðskiptadeild, lagadeild, tölvunarfræðideild, tækni- og verkfræðideild og frumgreinadeild.