Nýskráðum einkahlutafélögum á árinu 2014 fjölgaði um 6% samanborið við fyrra ár. Þá fækkaði gjaldþrotum jafnframt um 14% á árinu. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands .

Alls voru 2.050 ný félög skráð á árinu. Mest fjölgun nýskráninga var í flokknum Sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi, eða sem nemur 33%.

Alls voru 795 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta á árinu, samanborið við 920 árið áður. Gjaldþrotum í flokknum Fasteignaviðskipti hefur fækkað mest, eða um 36%.