Um 1340 nýnemar hófu nám við Háskólann Í Reykjavík í haust, sem er um 7% fjölgun frá síðasta skólaári. 908 nemar hefja grunnnám, 283 meistaranám og 152 frumgreinanám. Að auki stunda um 140 erlendir skiptinemar nám við HR á þessari önn. Samtals hófu því um 1500 manns fjölbreytt nám við HR í liðinni viku. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá HR.

Mesta fjölgun nýnema er í lagadeild þar sem nýnemum í grunnnámi og meistaranámi í lögfræði fjölgar um þriðjung á milli ára. Flestir nýnemar hófu nám í tækni- og verkfræðideild og þar er fjölgun nýnema sérstaklega áberandi í grunnnámi í heilbrigðisverkfræði og í íþróttafræði. Um 40 erlendir meistaranemar stunda nám við HR á þessu skólaári, flestir í Íslenska orkuháskólanum.

Alls stunda um 3600 nemendur nám við HR á yfirstandandi skólaári, í viðskiptadeild, lagadeild, tölvunarfræðideild, tækni- og verkfræðideild og frumgreinadeild.