„Þetta gengur býsna vel. Framtölin streyma inn og menn virðast fyrr á ferðinni en undanfarin ár því fleiri eru búnir að skila framtölum sínum nú en á sama tíma í fyrra,“ segir Karl Óskar Magnússon, hópsstjóri á tæknideild Ríkisskattsstjóra.
Frestur til að skila skattframtölum rann út 22. mars síðastliðinn og var mögulegt að sækja um frest sem rennur út á morgun.
Karl telur ástæðuna fyrir betri skilum nú en fyrri ár þau að forskráðar upplýsingar eru á skattframtölum nú í meiri mæli en áður og auðveldi það mjög framtalsgerðina. Þá telur hann að auglýsingar sem minni á skiladag hafa skilað sínu.
„Við höfum verið að fínpússa þetta einfalda framtal síðustu tvö ár. Nú þarf fólk aðeins að renna yfir það og skila því,“ segir hann en bætir við að margir sæki um skilafrest án þess að nýta sér hann.
Nær allir skila á Netinu
Karl segir almennt á bilinu 95% til 96% skattframtöl skila sér með rafrænum hætti. Það á bæði við um framtöl frá einstaklingum og frá endurskoðendum sem skila framtölum sínum með sérstaökum framtalsforritum.
Karl bendir á að enn sé örlítill hópur eftir sem vilji aðeins skila framtölum sínum á pappírsformi og því erfitt að auka hlutfall netskila. Því til viðbótar skili sumir engum framtölum. Á síðasta ári voru það um 5% framteljenda. Þeir fengu á sig áætlun.