Svo virðist sem fleiri geti hugsað sér að gera tilboð í Somerfield verslunarkeðjuna sem Baugur hefur þegar gert tilboð í. Í frétt í netútgáfu This is London kemur fram að bræðurnir Robert og Vincent Tchenguiz séu að ganga frá tilboði upp á um 1,2 milljarða punda í Somefield. Þar er því haldið fram að bræðurnir séu að ganga frá tilboði upp á 220 p. á hlut sem er 30 p. hærra en Baugur hefur boðið.

Þeir bræður hafa hagnast á festeignaviðskiptum og mun það skýra áhuga þeirra á að gera tilboð í Somerfield en fasteignir verslunarkeðjunnar eru metnar á um 550 milljónir punda.