Aðeins helmingur landsmanna telur að fréttir af alvarleika hlýnunar jarðar séu almennt réttar að því er fram kemur í nýrri Umhverfiskönnun Gallup. Aðrir skiptast í tvær fylkingar þar sem ríflega fjórðungur telur að þær séu almennt ýktar og nær fjórðungur telur að þær séu almennt vanmetnar.

Hlutfall þeirra sem telja að fréttir af alvarleika hlýnunar jarðar séu almennt ýktar er hærra nú en fyrir tveimur árum, eða 26,1% nú á móti 11,4% í desember 2018. Karlar halda frekar en konur að fréttir af alvarleika hlýnunar jarðar séu almennt ýktar, en um þriðjungur karla telur þær vera það, meðan 18% kvenna telja fréttir um slíkt vera ýktar.

Fólk á aldrinum 45-66 ára telur sömuleiðis frekar en aðrir aldurshópar að fréttirnar séu almennt ýktar, eða um 30% þeirra sem eru 45 til 55 ára en upp í 36% þeirra sem eru 56 til 66 ára. 21% þeirra sem eru 18 til 44 ára telja slíkar fréttir ýktar og 24% 67 ára og eldri.

Umhverfiskönnun Gallup verður kynnt á Umhverfisráðstefnu félagsins sem haldin verður í Hörpu á morgun , 19. febrúar. Í rannsókninni voru landsmenn spurðir um viðhorf og hegðun í tengslum við umhverfismál og loftslagsbreytingar.

Ráðstefnan er haldin í samstarfi við Krónuna, Reykjavíkurborg, Arion banka, Landsvirkjun, Umhverfisstofnun, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi og Icelandair Hotels.