Warren Buffett, framkvæmdastjóri og stjórnarformaður Berkshire Hathaway, segir það ekki útilokað að Berkshire Hathaway kaupi fleiri blaðaútgáfur. Síðustu mánuði hefur fyrirtækið verið að yfirtaka minni blaðaútgáfur víðsvegar um Bandaríkin.
Buffett segir hins vegar ekki miklar líkur á yfirtökum á stærri blaðaútgáfum.

Nýlega keypti Berkshire Hathaway blaðaútgáfuna Omaha World-Herald en það blað á rætur sýnar að rekja til gamla heimabæjar Buffett. Blaðið var stofnað árið 1885 og rúmlega 180 þúsund manns sem lesa dagblaðið daglega.