Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði um 0,34% í dag og endaði í 1.647,23 stigum. Frá áramótum hefur vísitalan hækkað um 25,65%.

Flest öll bréf á markaði lækkuðu í dag en mest lækkuðu gengi bréfa Össurar um 2,08%, VÍS um 1,41% og TM um 0,97%.

Velta á hlutabréfamarkaði nam 1,323 milljónum króna og var veltan mest í viðskiptum með bréf Icelandair Group, en þau námu 333,6 milljónum króna.