Íslendingar ætla ýmist að eyða svipuðum upphæðum og í fyrra til jólagjafakaupa, eða eyða lægri upphæðum en fyrir síðustu jól, samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2.

Alls sögðust 58,7 prósent þeirra sem afstöðu tóku í könnuninni ætla að eyða svipuðum upphæðum og í fyrra í jólagjafirnar. Um 33,5 prósent ætla að eyða minni peningum en á síðasta ári. Aðeins 7,8 prósent segjast reikna með að eyða hærri fjárhæðum í jólagjafakaupin.

Karlar virðast örlítið líklegri en konur til að ætla að auka við útgjöldin eða halda þeim óbreyttum. Um 31,7 prósent karla segjast ætla að eyða minna fé, 60,1 prósent svipuðu og í fyrra, og 8,2 prósent hærri fjárhæðum. Um 35,4 prósent kvenna ætla að draga úr útgjöldum, 57,3 prósent halda þeim óbreyttum en 7,4 prósent eyða meiru. Þeir sem eldri eru virðast aðhaldssamari í jólagjafakaupunum en yngra fólk. Um 10,6 prósent fólks á aldrinum 18 til 49 ára ætla að eyða meiru í jólagjafirnar í ár, en 4,1 prósent fólks 50 ára og eldri.