Vinsælasta leitarorðið á Ja.is á síðasta ári var Domus Medica. Þar á eftir kom N1, en í þriðja sæti kom Landspítalinn. Þetta kemur fram í yfirliti yfir heimsóknir á síðasta ári. Á hverju ári eru framkvæmdar hátt í 100 milljónir síðuflettinga á Já.is en vefurinn fær um 225 þúsund stakar heimsóknir í hverri viku. Hér að neðan má sjá vinsælustu leitarorðin á síðasta ári:

1. Domus Medica
2. N1
3. Landspítalinn
4. Landsbankinn
5. 365
6. Vodafone
7. Icelandair
8. VÍS
9. Nova
10. Lyfja

Það virðist því margt benda til þess að notendum Ja.is hafi verið umhugað um heilsuna, fjármálin og bílinn sinn.  Frá árinu á undan eru nýir aðilar á topp 10 listanum 365, VÍS, Nova og Lyfja.