Júlí var vinsælasti ferðamánuður síðasta árs á Keflavíkurflugvelli ef marka má upplýsingar á heimasíðu vallarins.

Þar kemur fram að um 330.000 einstaklingar lögðu leið sína um flugvöllinn í júlímánuði.

Í öðru sæti var ágúst með um 320.000 einstaklinga.

Það kemur sjálfsagt fáum á óvart að fæstir vildu ferðist í janúar en þá voru farþegar aðeins um 96.000 og litlu fleiri í febrúar.

Heildarfjöldi farþega á Keflavíkurflugvelli var 2.112.017 á árinu 2011 sem er 17,9% aukning frá fyrra ári.