Stærstur hluti landsmanna er sáttur við þá ákvörðun Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur, fyrrv. þingmanns Samfylkingarinnar, að segja af sér þingmennsku fyrr á þessu ári.

Að sama skapi er stór hluti landsmanna ósáttur við þá ákvörðun Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, að segja ekki af sér þingmennsku.

Þá er stór hluti landsmanna ósáttur við þá fyrirætlun Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, fyrrv. varaformanns Sjálfstæðisflokksins og ráðherra, að setjast aftur á þing núna í haust.

Þetta kemur fram í könnun MMR sem unnin var fyrir Viðskiptablaðið. Athygli vekur að stærstur hluti kjósenda Sjálfstæðisflokksins er ósáttur við þá ákvörðun Guðlaugs Þórs að segja ekki af sér á meðan meirihluti kjósenda flokksins er ósáttur við þá fyrirætlun Þorgerðar Katrínar að snúa aftur á þing í haust.

_____________________________

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu sem kemur út í fyrramálið. Áskrifendur geta lesið blaðið á pdf-formi hér á vefnum og þeir sem ekki hafa lykilorð geta sótt um það hér .