82,4% Sunnlendinga eru hlynnt gjaldtöku í ferðaþjónustu. Flestir eru þó fylgjandi því að gjaldtakan verði í formi brottfarar- og komugjalda, eða 28,3%. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í viðhorfskönnun Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga. Morgunblaðið fjallar um málið í dag.

Í könnuninni voru íbúar á Suðurlandi spurðir um afstöðu sína varðandi gjaldtöku í ferðaþjónustu. Af þeim 837 sem þátt tóku í könnuninni voru 333 aðilar í ferðaþjónustu. Af þeim sem svöruðu vildu 21,5% aðgangseyri á einstaka staði en 19,5% vildu blöndu af náttúrupassa og gjaldtöku á einstaka stöðum. Tekið er fram að í svörum hafi komið fram að Íslendingar ættu ekki að þurfa að greiða fyrir aðgang að íslenskri náttúru auk þess sem skattleggja ætti afþreyingarfyrirtæki, sem m.a. geri út á gönguferðir, bátsferðir, skoðunarferðir og annað.