Flestir bera mikið traust til lögreglunnar, samkvæmt nýrri könnun MMR á trausti til helstu stofnana samfélagsins. 79,5% þeirra sem tóku afstöðu sögðust bera mikið traust til lögreglunnar, en 6,9% bera lítið traust til hennar.

70,2% segjast treysta Háskóla Íslands og 58% Háskólanum í Reykjavík. 6,5% bera lítið traust til HÍ og 9% bera lítið traust til HR.

51,3% segjast bera mikið traust til Ríkisútvarpsins en 19,2% lítið traust.

Fæstir treysta bankakerfinu, eða 10,2% svarenda. Hins vegar svöruðu 66,8% því að þeir bæru lítið traust til bankakerfisins. Þá treysta aðeins 12,8% Alþingi og 12,9% Fjármálaeftirlitinu.

959 einstaklingar svöruðu könnun MMR en þeir voru allir úr hópi álitsgjafa fyrirtæksisins. Könnunin var gerð dagana 16. til 21. október.