Flestir bera traust til Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, samkvæmt könnun MMR á trausti almennings til forystufólks í stjórnmálum. Traust almennings til Ólafs Ragnars eykst verulega frá síðustu könnun sem gerð var í maí í fyrra og eykst um 15 prósentustig. Þannig segjast tæp 42% aðspurðra bera traust til forsetans.
Að sama skapi fækkar þeim verulega sem bera lítið traust til forsetans, eða um tæp 22 prósentustig. Rúmlega 25% aðspurðra segjast bera lítið traust til forsetans.
Þá fækkar þeim verulega sem bera mikið traust til Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar. Á meðan 22% aðspurðra segjast bera traust til Steingríms J. segjast 56% bera lítið traust til hans. Þá segjast 17% aðspurðra bera traust til Jóhönnu Sigurðardóttur en rúmlega 60% aðspurðra segjast bera lítið traust til hennar.
Þannig er Jóhanna sá stjórnamálamaður sem flestir segjast vantreysta en þar á eftir kemur Jón Gnarr, borgarstjóri en um 57% aðspurðra segjast bara lítið traust til hans á meðan 16% segjast treysta honum.
Sé horft til desember 2008 sést hvernig þróun á trausti almennings til forsetans hefur sveiflast. Þrátt fyrir aukið traust nú nær forsetinn ekki sama traustfylgi og hann hafði í desember 2008, þó vissulega komist hann nálægt því. Þeir sem segjast bera lítið traust til forsetans hafa þó ekki verið færri í könnunum MMR.
Á myndinni hér að ofan má sjá þróun á trausti almennings til forsetans og formanna stærstu stjórnmálaflokkanna frá því í desember 2008, að Bjarna Benediktssyni undanskildum en hann var fyrstu mældur í september 2009.
Þar sést hvernig traust til Ólafs Ragnars dalar á fyrstu níu mánuðum ársins 2009 en hefur síðan þá aukist verulega. Á sama tíma hefur traust almennings til Steingríms J. og Jóhönnu dalað verulega, þó mest hjá Jóhönnu. Í desember 2008 sögðust tæp 60% landsmanna treysta henni en það hefur minnkað niður í tæp 17% sem fyrr segir.
Hér að neðan bera að líta þróun á trausti almennings til Ólafs Ragnar flokkað eftir stuðningi við stjórnmálaflokka. Þar sést hvernig forsetinn nýtur nú mun minni traust meðal þeirra sem styðja ríkisstjórnarflokkana tvo, Samfylkinguna og Vinstri græna, en hann gerði áður. Á sama tíma hefur traust þeirra sem styðja Sjálfstæðisflokkinn aukist verulega en mest trausts nýtur hann á meðal þeirra sem styðja Framsóknarflokkinn eða tæp 68%.
Könnunina má sjá í heild sinni HÉR .