Enginn af forystumönnum stjórnmálaflokka mælist nú með jafn mikið vantraust og Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins. Þá vekur athygli að af formönnum stjórnmálaflokkanna mælist Bjarni með minnstan stuðning sinna eigin flokksmanna.

Þetta sýnir ný könnun MMR á trausti almennings til forystufólks í stjórnmálum sem birt var í gær. Rétt er að taka fram að MMR birti fyrstu könnun sína í þessum flokk í desember 2008 en Bjarni varð formaður Sjálfstæðisflokksins í mars 2009. Þetta er því í fjórða sinn sem Bjarni er talinn með í traustkönnun MMR.

Alls sögðust 64,5% aðspurðra bera „frekar eða mjög lítið“ traust til Bjarna og hefur þeim fjölgað nokkuð á milli ára, eða um rúm 13,3 prósentustig. Þó er rétt að taka fram að Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, og Jón Gnarr, borgarstjóri, fylgja fast á eftir þar sem 63,9% og 63,7% aðspurðra sögðust bera lítið traust til þeirra. Í sömu könnun í mars í fyrra var Bjarni þó sá stjórnmálamaður sem almenningur vantreysti minnst.

Þá fækkar þeim á milli ára sem segjast bera „frekar eða mjög mikið“ til Bjarna. Nú segjast tæplega 16% aðspurðra bera traust til hans á meðan 19% aðspurðra sögðust bera traust til hans í mars í fyrra.

Traust til Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, skv. traustkönnunum MMR.
Traust til Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, skv. traustkönnunum MMR.
© vb.is (vb.is)

Á myndinni hér að ofan má sjá þróunina á trausti almennings til Bjarna frá því að hann tók við sem formaður Sjálfstæðisflokksins. Til að byrja með fjölgaði þeim hratt sem sögðust bera lítið traust til hans en þeim fækkaði þó á ný í fyrra. Í september 2009 sögðust 54% aðspurðra í sömu könnun MMR bera lítið traust til Bjarna en í maí 2010 sögðust 67% aðspurðra bera lítið traust til hans.

Í september 2009 sögðust rúmlega 18% aðspurðra treysta Bjarna en þeir eru nú sem fyrr segir um 16%.

Minnkandi traust meðal stuðningsmanna Sjálfstæðisflokksins

Á myndinni hér að neðan má sjá þróun á trausti til Bjarna flokkað eftir stuðningi almennings við stjórnmálaflokka. Þar sést að traust til Bjarna meðal þeirra sem styðja Sjálfstæðisflokkinn hefur minnkað frá því að hann tók við sem formaður, úr 60% í 55%. Traust stuðningsmanna Sjálfstæðisflokksins til Bjarna hefur lítið sem ekkert breyst í tvö ár, farið úr 55,6% niður í 55%.

Traust til Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, flokkað niður eftir stuðningi við stjórnmálaflokka skv. traustkönnunum MMR.
Traust til Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, flokkað niður eftir stuðningi við stjórnmálaflokka skv. traustkönnunum MMR.
© vb.is (vb.is)

Af öllum formönnum stærstu stjórnmálaflokkanna er Bjarni sem fyrr sá formaður sem minnst trausts nýtur meðal stuðningsmanna síns eigin flokks. Þannig mælist stuðningur við formann Samfylkingarinnar, Framsóknarflokksins og Vinstri grænna á bilinu 67% - 91% meðal stuðningsmanna hvers flokks, þó lægst hjá Samfylkingunni.

Líkt og með aðra formenn stjórnamálaflokkanna minnkar traustið á Bjarna meðal stuðningsmanna annarra flokka, þá sérstaklega meðal stuðningsmanna ríkisstjórnarflokkanna. Athygli vekur að 0% stuðningsmanna Samfylkingarinnar segjast bera traust til Bjarna á meðan tæp 2% stuðningsmanna Vinstri grænna segjast bera traust til hans.