Við viljum oft kalla okkur bókaþjóð og virðumst bera nafn með rentu því flestir óska sér bókar í jólagjöf eða ríflega fimmtungur þeirra sem taka afstöðu. Fólk yfir fimmtugu er líklegra en yngra fólk til að langa mest í bók. Þetta kemur fram í nýjasta Þjóðarpúls Gallup.

Landsmenn vilja greinilega ekki fara í jólaköttinn því af þeim sem nefna veraldlega hluti nefna næstflestir einhvers konar fatnað eða nær 14%. Þar af tala næstum 5% um fatnað, hátt í 4% langar í skó, rúmlega 3% yfirhöfn, rúmlega 1% peysu og nær 1% náttfatnað. Þeir sem eru með háskólapróf eru líklegri en þeir sem hafa minni menntun að baki til að langa mest í föt í jólagjöf.

Rúmlega 3% langar í eitthvað fyrir heimilið, nær 3% langar í úr og sama hlutfall skartgripi. Ríflega 2% langar í ferðalag, nær 2% heyrnartól og sama hlutfall tölvu, rafbók eða spjaldtölvu. Ríflega 1% langar í síma og sama hlutfall langar í einhver heimilistæki, um 1% langar í pening og sama hlutfall langar í gjafabréf. Loks langar nær 1% í búsáhöld.

Þetta eru þeir veraldlegu hlutir sem landsmenn óska sér helst í jólagjöf en mjög margir nefna hluti sem eru ekki metnir til fjár. Þannig segja nær 8% að þau langi að vera með fjölskyldunni, næstum 6% óska sér heimsfriðar, 4% langar mest í stressleysi og rólegheit, hátt í 4% í kærleika eða koss og knús og nær 3% jólagleði. Loks langar tæplega 3% mest í góða heilsu í jólagjöf og hátt í 2% óska sér hamingju.