Rúmlega 46% þeirra sem afstöðu tóku í könnun Félagsvísindastofnunar fyrir Morgunblaðið vilja að Dagur B. Eggertsson verði áfram borgarstjóri í Reykjavík. Tæp 30% nefna Eyþór Laxdal Arnalds, oddvita Sjálfstæðisflokksins. Í þriðja sæti er Vigdís Hauksdóttir, oddviti Miðflokksins en 7,1% þeirra sem tóku afstöðu vildu sjá hana sem borgarstjóra. 6,3% nefndu Líf Magneudóttur, oddvita VG, 3,4% Þórdísi Lóu Þórhallsdóttur, oddvita Viðreisnar, og 1,4% Ingvar Mar Jónsson, oddvita Framsóknarflokksins. 5,9% vildu einhvern annan.
Í Morgunblaðinu er haft eftir Degi að hann sé innilega þakklátur og ætli að reyna að standa undir því trausti sem honum er sýnt. Eyþór bendir hins vegar á að stuðningur við borgarstjórann sé innan við helmingur og minni en hann var fyrir síðustu kosningar.