Icelandair hefur tilkynnt að ekki verði af beinu áætlunarflugi félagsins til St. Pétursborgar í Rússlandi í júní í sumar. Flugið átti að vera tvisvar í viku og hefjast í byrjun mánaðarins.  Gert er ráð fyrir að flogið verði til og frá borginni í júlí og ágúst samkvæmt áætlun. Áætlunarflug Icelandair frá St. Pétursborg hófst í fyrrasumar.

„Við þurfum við að endurskoða ýmsa þætti í starfseminni í ljósi þeirrar óvissu sem verkfallsaðgerðir gegn Icelandair skapa um þessar mundir. Þar á meðal að reyna með fyrirvara að létta á áætlun sumarsins og minnka þörf á yfirvinnu,“ segir Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair, í tilkynningu.

Eins og Viðskiptablaðið sagði frá í lok mars höfðu stjórnendur félagsins áhyggjur af stöðu flugs til Pétursborgar og kom jafnframt fram á framkvæmdastjórnarfundi félagsins að viðhaldsstöð byggist við því að einhverjar af vélunum yrðu seinar í notkun og þannig líklegt að vandamál því tengd yrðu í maí til viðbótar við hugsanlegar verkfallsaðgerðir.

Í tilkynningu frá Iclandair segir að öllum farþegum sem voru bókaðir í flug til og frá St. Pétursborg með Icelandair í júní verður boðið upp á endurbókanir eftir öðrum leiðum.