Á næsta ári hyggst Icelandair hefja áætlunarflug til tveggja nýrra áfangastaða í Bandaríkunum, annars vegar til borgarinnar Philadelphia í Pennsylvaníuríki og hins vegar til Tampa á Flórída.

Hefst flugið til Philadelphia 30. maí og stendur til 20. september en flugið til Tampa verður heilsársflug sem hefst næsta haust, þann 6. september. Er um að ræða sautjánda og átjánda áfangastað flugfélagsins en sala flugmiða er þegar hafin.

Búast við 4,2 milljón farþegum

Flugfélagið áætlar að af farþegar þess verði um 4,2 milljónir á næsta ári, sem sé fjölgun um 450 þúsund frá þessu ári.

Verður flugáætlun félagsins 13% umfangsmeiri en á þessu ári og alls verða 30 flugvélar nýttar til farþegaflugfélagsins. Munu þá tvær Boeing 767 vélar bætast við flugflota Icelandair.

Síðan 2009 hefur leiðarkerfi Icelandair margfaldast að umfangi, en þá voru farþegar þess um 1,3 milljónir manns eða um þriðjungur þess sem gert er ráð fyrir á næsta ári.

Einn helsti sögustaður Bandaríkjanna

„Philadelphia er ein af þekktustu borgum Bandaríkjanna, en hún tilheyrir Pennsylvaniufylki og er mitt á milli New York og Washington. Phildadelphia er einn af helstu sögustöðum Bandaríkjanna er bæði sjálfstæðisyfirlýsingin (1776) og stjórnarskráin (1787) voru staðfest og undirrituð þar,“ segir í fréttatilkynningu frá félaginu.

„Borgin er ein sú stærsta í Bandaríkjunum en íbúafjöldi hennar og næsta nágrennis er um 7,2 milljónir. Flogið verður fjórum sinnum í viku næsta sumar á alþjóðaflugvöllinn í borginni, sem er meðal umferðarmestu flugvalla Norður-Ameríku.“

Opna stór ný markaðssvæði

Haft er eftir Birki Hólm Guðnasyni framkvæmdastjóra Icelandair í fréttatilkynningunni að báðir áfangastaðirnir styrki tengiflug félagsins til og frá Evrópuborgum og opni stór ný markaðssvæði fyrir íslenska ferðaþjónustu.

„Tampa í Florida stendur við Mexíkóflóann og er miðstöð stjórnsýslu og þjónustu fyrir um 4,5 milljón íbúa svæði sem einkum er þekkt fyrir ferðaþjónustu og strandbæi eins og St. Petersburg, Clearwater Beach og Sarasota,“ segir jafnframt í tilkynningunni.

„Tæplega tveggja tíma akstur er milli Orlando, sem Icelandair hefur þjónustað um árabil, og Tampa. Flugið til Tampa Bay hefst 6. september og eykst þá tíðnin inn á hina vinsælu ferðamannastaði Florida, auk þess sem Tampa flugvöllur býður upp á góða