Í sumar verður flogið beint frá Keflavík til fimmtíu borga í Evrópu og Norður-Ameríku en samkvæmt vefmiðlinum Túristi.is hefur framboð á flugi frá landinu aldrei verið eins mikið og það verður í sumar. Flogið verður til fimm nýrra borga en það eru kanadísku borginar Edmonton og Vancouver, svissnesku borgirnar Basel og Genf og breska borgin Birmingham.

Það er Icelandair sem flýgur til kanadísku borganna og Genfar í Sviss. Easy Jet flýgur til Basel og Flybe flýgur á milli Keflavíkur og Birmingham, sem er næststærsta borg Englands. Við þetta mikla framboð bætist svo leiguflug ferðaskrifstofa á suðrænar slóðir.