Af þrjátíu og þremur málaflokkum sem semja þarf um hefur verið gengið frá samningum í tíu köflum. Alls hafa átján kaflar verið opnaðir og segist Stefán Haukur Jóhannesson, aðalsamningamaður Íslands vonast til að sú tala verði tuttugu og níu fyrir árslok.

VB sjónvarp náði tali af Stefáni Hauki þar sem hann fylgdist með umræðum um evruna á morgunfundi fransk-íslenska viðskiptaráðsins síðastliðinn föstudag.