Flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, sem fram fór í kvöld, lýsir yfir stuðningi við stjórnarmyndunarviðræður VG og Samfylkingar, með samþykki Framsóknarflokksins.

Ályktunin er svohljóðandi:

„Flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs haldinn í Reykjavík 27. janúar 2009 lýsir yfir stuðningi við þátttöku þingflokksins í yfirstandandi stjórnarmyndunarviðræðum og vonar að þær verði leiddar til lykta með farsælum hætti."