Viðskiptahugmyndin FLOW VR sigraði Gulleggið 2018, frumkvöðlakeppni Icelandic Startups. Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, afhenti verðlaunagripinn Gulleggið við hátíðlega athöfn í Háskóla Íslands nú rétt í þessu. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Icelandic Startups.

1. sæti

Í fyrsta sæti voru FLOW VR sem hlutu að launum 1.000.000 kr. frá Landsbankanum. FLOW VR hlaut jafnframt ráðgjafatíma hjá Marel og kostnaðarlausa þátttöku í Aðallínu-Útlínu verkefni Íslandsstofu í aukaverðlaun.

FLOW VR býður uppá áhrifaríka hugleiðslu í alltumlykjandi sýndarveruleika.

2. sæti

Í öðru sæti var Greiði sem hlutu jafnframt að launum 500.000 kr. frá Landsbankanum

Greiði er app og markaður fyrir öll möguleg verk sem finnast í samfélagi okkar. Þar geta verkkaupar auðveldlega leitað að fjölbreyttri þjónustu, fundið verktaka í málið, borið saman verð og pantað þjónustu á skilvirkan máta. Vantar þig einhvern til að slá grasið þitt? Passa hundinn í fríinu? Laga pípulagnirnar? Frönskukennslu? Aðstoð við að flytja? Greiðinn getur hjálpað þér við þetta og margt annað.

3. sæti

Í þriðja sæti var Eirium sem hlutu að launum 300.000 kr. frá Landsbankanum

Eirium þróar dreifðan hugbúnað sem eykur gegnsæi, traust og nýtni í því fjármagni sem lagt er til hjálparstarfs, neyðar- og þróunaraðstoðar um allan heim.

Aukaverðlaun

Advel lögmannastofa veitti 10klst endurgjaldslausa lögfræðiráðgjöf hjá sérfræðingum Advel lögmanna. Þau verðlaun fóru til Ekki banka en þau hjálpa neytendum að leita bestu kjara á lána- og tryggingamarkaði.

KPMG veitti 20klst í ráðgjöf til Álfur brugghús sem bruggar bjór úr kartöfluskræli og afskorningum sem verða til afgangs í framleiðslu kartöfluvara og fara annars til spillis. Úr verður léttur og auðdrekkanlegur bjór úr úrvals íslensku hráefni sem minnkar sóun matvæla.

Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins veitti 150.000kr ásamt fjármögnunarráðgjöf til Värk. Teymið þróar vöru sem gerir fólki kleift að endurvinna kaffikorg til þess að rækta ostrusveppi heima hjá sér