Hugsanlegt er að allt flug Norwegian liggi niðri á mánudaginn. Um sex hundruð starfsmenn sem eru starfandi í Noregi, í Svíþjóð og í Danmörku munu þá mögulega hefja verkfall.
Ástæðan er sú að Norwegian mun hugsanlega færa þá úr hópi fastra starfsmanna Norwegian og semja við þá sem verktaka. Flugmennirnir eru ósáttir við þessar breytingar vilja halda eldri kjörum.