Flugmiðar á vinsælustu flugleiðum Íslendinga, Kaupmannahöfn og Lundúna, hafa lækkað umtalsvert í verði samkvæmt nýrri könnun Dohop. Síðasta könnun var gerð fyrir um mánuði síðan.
Verðið til Kaupmannahafnar lækkar um tæp 25% og um rúm 9% til Lundúna.
Athygli vekur að flugmiði með Icelandair til Lundúna er ódýrari heldur en með lággjaldaflugfélögunum Wowair og Easyjet.
Mest hækkun er á flugi til Helsinki eða um 25%. Icelandair er eina flugfélagið sem flýgur frá Keflavík til Helsinki.
Dohop kannaði 13 flugleiðir í könnuninni. Nánar má lesa um könnunina hér .