Flugfélag Íslands hefur skrifað undir samninga við kanadíska fyrirtækið Avmax um sölu á fjórum Fokker 50 vélum félagsins, varahreyfli og varahlutum tengdum Fokker vélunum. Kemur fram í tilkynningu að með þessum samningum ljúki sögu Fokker 50 véla í eigu Flugfélags Íslands en þær hafa verið hjá félaginu frá 1992 og fyrirrennarar þeirra, Fokker 27 frá því árið 1965.

Í tengslum við þessa sölu kaupir Flugfélag Íslands eina Bombardier Q200, 37 sæta vél af Avmax en fyrir er félagið með tvær slíkar vélar í rekstri. Gert er ráð fyrir að Q200 vélin komi í rekstur félagsins um næstu áramót en afhending Fokker 50 vélanna mun fara fram á næstu vikum.

Í kjölfar breytinga á flugflota félagsins á síðasta ári þegar 3 Bombardier Q400 72-76 sæta vélar voru teknar í notkun urðu miklar breytingar á rekstri félagsins, að því er segir í tilkynningunni. Nýjum áfangastöðum hefur verið bætt við leiðarkerfi félagsins, flug til Aberdeen í Skotlandi frá Keflavík hófst í mars 2016, flug til Kangerlussuaq á Grænlandi hófst í júní síðastliðnum og í febrúar á þessu ári hófst heilsársflug milli Keflavíkur og Akureyrar. Í júní næstkomandi mun síðan hefjast flug frá Keflavík til Belfast á Norður-Írlandi.