Töluvert fleiri farþegar eiga bókað flug með Flugfélagi Íslands um hátíðirnar en á síðasta ári. Fjölgunin nemur 8% og dreifist nokkuð jafnt á áfangastaði, að því er segir í frétt frá félaginu.

Hlutfallslega er aukningin mest í flugi til Vestmannaeyja en þangað eiga um tvöfalt fleiri farþegar bókað en á síðasta ári, einnig er töluverð aukning í flugi til Egilsstaða. Miðað er við tímabilið 23. desember til 4. janúar.

Í dag, Þorláksmessu, eru hátt í 900 farþegar bókaðir í flug sem er töluverð aukning frá fyrra ári en þar getur haft áhrif á hvaða vikudegi Þorláksmessa ber upp. Flug hefur gengið vel til allra staða nema Ísafjarðar en flug þangað er í athugun.

Það má leyfa sér að túlka þessa fjölgun farþega að enn frekar en áður leggi landsmenn áherslu á að njóta hátíðanna í faðmi sinna nánustu fjölskyldu og vina, segir í fréttinni frá Flugfélagi Íslands.