Hægt hefur á samrunaviðræðum milli United Airlines og US Airways Group og ekki er búist við að samningur verði í höfn fyrir haustið. Reuters greinir frá því að samkvæmt heimildum sínum hafi viðræðum ekki verið slitið, en United Airlines haldi hins vegar áfram samrunaviðræðum sínum við Continental Airlines.
Samkvæmt ónafngreindum heimildarmönnum New York Times gætu viðræður milli United Airlines og US Airways verið teknar upp aftur einhvern tíman, en sem stendur séu nánast engin samskipti milli félaganna. US Airways hófu samrunaviðræður við Continental Airlines á meðan á samningaviðræðum við United Airlines stóðu yfir. Continental á einnig í viðræðum við American Airlines og British Airways um samruna, samkvæmt heimildum Reuters.
Delta Air Lines og Northwest Airlines Corp hafa þegar náð samkomulagi um samruna og kemur þessi bylgja samrunaviðræðna í kjölfar þess. Við samruna Delta og Northwest verður til stærsta flugfélag í heimi.