Félagsmenn Flugfreyjufélags Íslands (FFÍ) hafa samþykkt nýjan kjarasamning við Icelandair Group Samningurinn hefur tekið gildi og mun gilda til 31. ágúst 2015, að því er fram kemur í tilkynningu.

Þetta er annar samningurinn á stuttum tíma sem skrifað er undir hjá Icelandair Group en í síðustu viku samþykktu flugmenn félagsins nýjan kjarasamning sem Félag íslenskra atvinnuflugmanna gerði við Icelandair Group. Sá samningur gildir hins vegar til 30. september 2014.