Félagsmenn Flugfreyjufélags Íslands hafa fellt nýjan kjarasamning sem aðilar skrifuðu undir hjá Ríkissáttasemjara þann 25. júní síðastliðinn í atkvæðagreiðslu sem lauk í dag. Flugfélagið mun nú meta þá möguleika sem eru í stöðunni.

Í tilkynningu Icelandair segir að samningurinn hafi verið í samræmi við þau markmið sem lagt var upp með um að auka vinnuframlag en á sama tíma verja ráðstöfunartekjur flugfreyja og flugþjóna. Þá stuðlaði samningurinn að auknum sveigjanleika, bæði fyrir þróun leiðakerfis Icelandair og jafnframt sveigjanleika á vinnuframlagi fyrir starfsfólk.

Félagið hefur nú þegar gengið frá samningum við flugmenn og flugvirkja en eins og fram hefur komið eru langtímasamningar við flugstéttir ein af forsendum þess að félagið geti lokið fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins sem nú stendur yfir og hafið fyrirhugað hlutafjárútboð.

„Við höfum lagt allt kapp á að ná samningum við Flugfreyjufélag Íslands undanfarnar vikur og mánuði. Með þessum samningi gengum við eins langt og mögulegt var til að koma til móts við samninganefnd FFÍ. Þessi samningur hefði tryggt ein bestu kjör fyrir störf flugfreyja og flugþjóna sem þekkjast á alþjóðamarkaði en á sama tíma aukið samkeppnishæfni félagsins til framtíðar. Þetta eru því mikil vonbrigði,“ er haft eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair Group í fréttatilkynningu.

„Nú verðum við að skoða þá möguleika sem eru í stöðunni og munum gera það hratt og örugglega. Það hvílir mikil ábyrgð á okkur sem stjórna félaginu að tryggja rekstrargrundvöll þess til framtíðar og þar með verðmæti fyrir þjóðarbúið og mikilvæg störf, þar á meðal störf flugfreyja og flugþjóna.“