Fjármálastöðugleikaráð telur áhættu í fjármálakerfinu tiltölulega hóflega, en hún fari þó vaxandi. Áföll í fluggeiranum myndu ekki ógna fjármálastöðugleika.

Viðnámsþróttur viðskiptabankanna er sagður talsverður, og geta þjóðarbúsins til að takast á við áföll góð. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef stjórnarráðsins .

Fjármálastöðugleikaráð samanstendur af fjármála- og efnahagsráðherra, Bjarna Benediktssyni, sem jafnframt er formaður ráðsins, seðlabankastjóra, Má Guðmundssyni, og forstjóra Fjármálaeftirlitsins, Unni Gunnarsdóttur. Ráðið hélt sinn fjórða fund á árinu síðastliðinn föstudag, og tilkynningin var birt á vefnum í dag.

Auk ofangreinds er sagður áframhaldandi upptaktur í fjármálasveiflunni þrátt fyrir að slaknað hafi á spennu í þjóðarbúskapnum og líkur á samdrætti í ferðaþjónustu hafi aukist.

Þá var samþykkt stefna ráðsins um beitingu sveiflujöfnunarauka, auk tilmæla til Fjármálaeftirlitsins um óbreyttan sveiflujöfnunarauka.

Tilkynningin í heild sinni:

Fjármálastöðugleikaráð hélt sinn fjórða fund á árinu 2018 föstudaginn 5. október.

Á fundinum var fjallað um áhættu í fjármálakerfinu sem enn er talin tiltölulega hófleg, en hún hefur þó aukist frá síðasta fundi. Slaknað hefur á spennu í þjóðarbúskapnum og líkur á samdrætti í ferðaþjónustu hafa aukist. Áfram er upptaktur í fjármálasveiflunni og sjöunda ársfjórðunginn í röð vaxa skuldir einkageirans að nafnvirði. Hátt fasteignaverð, bæði á íbúðar- og atvinnuhúsnæði, felur í sér töluverða áhættu. Þróunin á íbúðamarkaði tengist að hluta til örum vexti ferðaþjónustunnar á undanförnum árum. Innlendir flugrekendur hafa lent í mótvindi undanfarna mánuði. Möguleg áföll í þeim geira myndu ekki ógna fjármálastöðugleika. Hratt dregur úr viðskiptaafgangi en fjárhagsleg staða heimila og fyrirtækja er enn sterk. Eiginfjárhlutföll stóru viðskiptabankanna hafa lækkað m.a. vegna aukinna arðgreiðslna en eru þó nokkuð yfir kröfum Fjármálaeftirlitsins og lausafjárstaða þeirra uppfyllir reglur Seðlabanka með ágætum. Viðnámsþróttur viðskiptabankanna er því talsverður. Þá er geta þjóðarbúsins til að takast á við áföll góð, m.a. vegna góðrar ytri stöðu, stórs gjaldeyrisforða og sögulega lágrar skuldastöðu hins opinbera og einkaaðila.

Samþykkt var stefna ráðsins um beitingu sveiflujöfnunarauka auk tilmæla til Fjármálaeftirlitsins um óbreyttan sveiflujöfnunarauka.